Articles by: Pari Stave

Ingirafn Steinarsson – Hólmi / Elevation

Ingirafn Steinarsson – Hólmi / Elevation

Ný sýning í galleríi Vesturveggur í bistrói Skaftfells. Opið daglega frá kl. 15:00. „Teikningarnar bera vísun í tilraun mannskepnunar til að skilja og skýra upplifun sína og það þekkingakerfi sem af hlýst. Andartaksaugnablik, frosið “Eureka”, guðleg upplifun, þekkingafræðileg sprenging, upplifun ofskynjunarefna eða fullnæging teiknuð upp af nákvæmni.“ Ingirafn Steinarsson útskrifaðist með mastersgráðu frá Listaháskólanum í Malmö, Svíþjóð árið 2005 eftir nám Listaháskólanum í Vín, Austurríki árið 2003 og Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996-1999. Hann hefur sýnt verk sín á Íslandi síðan 1998 og einnig tekið þátt í sýningum í nokkrum borgum Evrópu og Bandaríkjanna. Hann býr á Seyðisfirði.  

Amanda Riffo: TEYGJANLEGT ÁLAG

Amanda Riffo: TEYGJANLEGT ÁLAG

09.11.2019 — 05.01.2020 Opnun: Laugardaginn 9. nóvember 2019, kl. 16:00-18:00 Leiðsögn með listamanninum sunnudaginn 10. nóvember, kl. 14:00-15:00 Sýningin Amanda Riffo: TEYGJANLEGT ÁLAG er hluti af stefnu Skaftfells að sýna verk yngri listamanna sem eru búsettir á Íslandi og staddir á mikilvægum tímamótum í ferli sínum. Amanda Riffo er frönsk listakona sem flutti til Íslands árið 2012 en dvaldi þar áður í gestavinnustofu Skaftfells árið 2008. Amanda Riffo viðurkennir að hún sé haldin sjónkvilla og að þessi líkamlegi annmarki hafi veitt henni innblástur megnið af ferli sínum sem listamaður. Sjónin er undirstaða sjónlistar þar sem hinn hlutlægi veruleiki og huglæga […]

Read More