Hönnuðir, hljómsveitir og listamenn sem vilja koma fram á LungA 2010 gefst hér með tækifæri á að sækja um. LungA verður haldin á Seyðisfirði dagana 12. – 18. Júlí 2010. Umsóknarfrestur er til og með 15. Mars 2010. Allar umsóknir verða skoðaðar og svarað með tölvupósti. Sendið umsókn á lunga@lunga.is merkt í „subject“ línunni eftir því sem við á: „tónleikar“,“hönnun“ eða „listviðburður“. Með umsókninni þarf að senda umsögn og upplýsingar um umsækjanda (ferilskrá) sem og sýnishorn af verkum viðkomandi. Frekari upplýsingar í síma 861 7789 og á www.lunga.is ATH EKKI SENDA PÓST Á SKAFTFELL HELDUR NETFANGIÐ SEM ER GEFIÐ UPP […]
Articles by: Þórunn
Nýtt ár 2010
Þá er hafið nýtt starfsár í Skaftfelli. Hér ríkir gleðin ein og dagskrá ársins ástæða tilhlökkunar. Skaftfell mun á árinu auka enn við hlutverk sitt í fræðslumálum, taka á móti miklum fjölda listamanna frá öllum heimshornum og standa fyrir sýningum á verkum listamanna af öllu tagi. Gestavinnustofurnar eru full bókaðar út árið og mætti vel bæta við húsnæði undir þann fjölda sem hingað vill sækja. Yfirstandandi sýning, Fjallahringur Seyðisfjarar hefur verið mjög vel sótt og bókin sem gefin var út í tilefni hennar seldist upp nær samstundis. Hún verður þó væntanlega endurútgefin með vorinu og ættu því allir sem vilja […]