Mánudagur 5. ágúst á 20:00 Skaftfell hefur tekið á móti þremur nýjum gestalistamönnum og munu þeir halda stutta kynningu næstkomandi Mánudag kl. 20:00 í Bókabúðinni-verkefnarými. Ragnar Helgi Olafsson sem dvelur í einn mánuð. Åse Eg Jørgensen frá Danmörku og dvelur hún í tvo mánuði. Michal Kindernay frá Tékkland og dvelur hann í einn mánuð. Spjallið fer fram á ensku og verða léttar veitingar í boði.
Liðnar sýningar og viðburðir
FÖLBLÁR PUNKTUR
Föstudaginn 26. júlí kl. 17:00 í Bókabúð-verkefnarými. Ragnheiður Gestsdóttir og Curver Thoroddsen hafa dvalið í vinnustofum Skaftfells í júlí. Sýningin Fölblár punktur er samstarfsverkefni þeirra og til sýnis verður afrakstur vinnu og tilrauna listamannanna á tímabilinu. Viðfangsefni þeirra kanna bæði óravíddir heimsins og tilbreytingarlausan hversdagsleikann á sama tíma. Ragnheiður og Curver vinna með hina ýmsu miðla m.a. skúlptúr, vídeó og hljóð. Þau hafa áður verið saman í sýningu í New York en þetta er í fyrsta sinn sem þau gera myndlistarverk í samstarfi. Ragnheiður og Curver unnu saman að gerð tilraunakvikmyndinni „Eins og við værum“ sem var byggð á sex mánaða […]