Laugardaginn 28. apríl var útilistaverkið Sylt / Síld – eyja á eyju eftir listahópinn GV afhjúpað. Verkið er staðsett á landfyllingunni við höfnina á Seyðisfirði og er heilir 19 metrar á lengd. GV hópurinn dvaldi í gestavinnustofu á vegum Skaftfells í apríl og notaði Bókabúðinn-verkefnarými sem vinnustofu á meðan á dvöl þeirra stóð. Þar unnu þau að hugmyndavinnu og framkvæmd verkefnisins. Hugmyndin á bak við Sylt / Síld er að smíða svið, nokkursskonar pall sem að íbúðar Seyðisfjarðar geta notað eins og þeim lystir. Lögun verksins vísar í eyjuna Sylt, sem var áður skrifað Síld, og er staðsett við norðurströnd Þýskalands. Listamennirnir […]
Articles by: Tinna
Síðustu sýningardagar
Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu myndlistanema Listaháskóla Íslands í Skaftfelli. Síðasti sýningardagur er laugardaginn 5. maí, opið er frá kl. 17-22. SKÁSKEGG Á VHS+ CD opnaði í febrúar og er afrakstur tveggja vikna námskeiðs, undir leiðsögn Björns Roth, sem haldið er í samstarfi við Skaftfell, Listaháskóla Íslands, Dieter Roth Akademíuna og Tækniminjasafn Austurlands. Sýnendur: Ásgrímur Þórhallsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Claudia Hausfeld, Dóra Hrund Gísladóttir, Erik Hirt, Gintare Maciulskyté, Gunnar Jónsson, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Katla Stefánsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, Sigmann Þórðarson, Sigurður Þórir Ámundason, Steinunn Lilja Emilsdóttir & Viktor Pétur Hannesson. Sýningarstjóri er Björn Roth. Skaftell er opið: […]