Bókabúðin-verkefnarými Laugardag og sunnudag 7.-8. mars frá kl. 18:30 og frameftir No time to look through the mountains? er staðbundið verkefni eftir Effrosyni Kontogeorgou (GR) sem er unnið sérstaklega fyrir Bókabúðina – verkefnarými á eins mánaðar tímabili í gestavinnustofu Skaftfells. Listamaðurinn leggur fram spurningu um hver sé nákvæmlegur tilgangur dvalarinnar. Hvað er hægt að skynja á aðeins 30 dögum á ókunnum stað? Eingöngu útlínur. Fyrstu og sterkustu áhrifin koma frá umlykjandi fjöllum. En standa fjöllin sem myndlíking fyrir innilokun eða vegvísi að frelsi? Með óhlutbundinni nálgun verða vistarverurnar sjálfar, húsið og gluggar þess sem tengiliður við umhverfið, rannsóknarefni listamannsins á meðan á […]
Articles by: Tinna
Heimsókn í VA
Þann 28. október fóru tveir gestalistamenn frá Skaftfelli til Neskaupsstaðar og héldu kynningu á verkum sínum í valáfanganum Listakademían í Verkmenntaskóla Austurlands. Erik Bünger og Petter Letho eru báðir sænskir og dvelja í Skaftfell með styrk frá Norrænu menningargáttinni. Erik Bünger ræddi um bakgrunn sinn sem tónskáld og sýndi brot úr myndbandsverkum sínum. Hann nálgast tónlist sem fyrirbæri sem mannskepnan verður heltekin af og mannsröddina sem eitthvað ómannlegt sem yfirtekur mannslíkamann. Petter Letho sýndi nemendum ljósmyndir sem hann tók í Austur-Evrópu af gróskumiklli rappsenu sem þrífst þar og ræddi um tengsl ljósmyndana við núverandi verk í vinnslu, vetrarhúfur unnar frá […]